Articles
Skálakot
Skálakot er það sem áður kallaðist í Vestur Eyjafjallahreppi en tilheyrir í dag Rangárþingi Eystra. Jörðin liggur á milli fjalls og fjöru en í suðri blasa við Vestmannaeyjar og í norðri trjónir Eyjafjallajökull yfir í öllu sínu veldi.
Árið 1985 en keyptu Guðmundur og Jóhanna jörðina af Bjarna afa og Kötu ömmu en þau voru afi og amma Guðmundar.
Síðan þá hefur reksturinn einkennst af tamningum, ferðamennsku og sauðfjárrækt en í kringum 1990 hófust skipulagðar hestaferðir og hafa þær verið að skipa sér stærri sess í gegnum árin.
Með bústörfunum hefur verið stunduð hrossarækt af miklu kappi og hefur það verið að skila sér í betri hrossum frá ári til árs.
Guðmundur og Jóhanna eiga þrjú börn og eitt barnabarn; Þorgerði fædda 1986, Orra fæddan 1988, Birtu sem fæddist árið 1997 og Sögu sem fæddist árið 2010.
Þorgerður er búsett ásamt Ársæli sambýlismanni sínum og Sögu dóttur þeirra í nágrenni við Skálakot.
Orri er búsettur í Reykjavík ásamt Valborgu Ólafsdóttur og stundar hann þar vinnu og Birta stundar nám við Hvolsskóla ásamt því að stunda íþróttir af kappi.